Aðgangsstýrður bændavefur er eingögu ætlaður mjólkurframleiðendum. Hér geta mjólkurframleiðendur skoðað allar upplýsingar vegna innlagðrar mjólkur, s.s. gæðaniðurstöður, flokkanir mjólkur og greiðslur. Hægt er m.a. að sjá þróun einstakra gæðaþátta yfir lengra tímabil bæði í töflum og línuritum. Einnig er m.a. hægt að prenta út kýrsýnaspjöld RM, innleggssmiða og uppgjörsmiða Auðhumlu. Mjólkurframleiðendur geta prentað gögn sín út á pappír, flutt þau á einfaldan hátt yfir í Acrobat (pdf) skjöl eða Excel til frekari úrvinnslu.
Þessi vefur er unnin í samvinnu Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, MS og Auðhumlu og hýstur undir nýjum vef Auðhumlu. Það er von þessara aðila að aðgangsstýrði vefurinn megi koma að góðum notum fyrir mjólkurframleiðendur.
Hugmyndin er að vefurinn verði í stöðugri þróun þannig að ábendingar frá notendum eru vel þegnar. Ef notendur hafa ábendingar þá vinsamlegast smellið hér.